top of page
Fresh Produce Display
KaupmannsbúðÍSL_edited_edited.png

Opnum á Flateyri í júní

Vikutilboð

Hér munum við auglýsa vikuleg tilboð og annað sem viðkemur versluninni.

Hagnýtar upplýsingar

Hvernig virkar verslunin?

Opið þegar þér hentar, alla daga ársins, allan sólarhringinn.

Í upphafi býrð þú til aðgang þar sem þú auðkennir þig með rafrænum skilríkjum eða vegabréfi. Eftir að auðkenningu er lokið notar þú símann (eða kort hafir þú sótt um slikt) til þess að opna verslunina. Þegar inn er komið getur þú annaðhvort notað símann til þess að skanna vörur og greiða eða notar sjálfsafgreiðslukassa til þess að afgreiða þig sjálfur. Verslunin veit hver er í versluninni hverju sinni og nemur mistök í afgreiðslu og fimm fingra afslátt. Einstaklingar undir 18 ára aldri geta notað aðgang foreldra sinna og bera foreldrar ábyrgð á þeim meðan á dvöl þeirra stendur í versluninni.

Náðu í appið.

VÆNTANLEGT

Hér munt þú geta náð í appið til þess að nota verslunina.

Áttu ekki snjallsíma?

RFID Kort í boði.

Þú getur sótt um að fá kort sem kemur í stað apps til þess að fá aðgang inn í verslunarrýmið. Í versluninni verður sjálfsafgreiðslukassi fyrir þá sem vilja ekki versla með símanum.

Heyrðu í okkur

Liggur þér eitthvað á hjarta? Við tökum fegin við öllum ábendingum um verslun okkar, vöruúrvali og þjónustu.

bottom of page